Undirbúningur fyrir Síldarævintýrið 2024 er nú kominn í fullan gang. Lagt er upp með fjögurra daga fjölskylduhátíð um verslunarmannahelgina í svipuðum anda og í fyrra nema hvað viðburðir verða fleiri og stærri enda er þetta í 30. sinn sem Síldarævintýrið er haldið.

Sem fyrr er markmið hátíðarinnar að kynna það sem Siglufjörður hefur upp á að bjóða í menningu, mat og drykk að ógleymdu stórfenglegu umhverfi og sögunni sem er við hvert fótmál.

Öll barnadagskrá verður ókeypis, heimafólk í aðalhlutverki í tónlistarflutningi og annarri skemmtun, söfn og setur bjóða upp á fjölbreytta dagskrá. Auk þess verður sameiginleg grillveisla bæjarbúa, hverfaskreytingar, bjórleikar, síldarball, froðufjör, hoppukastalar, varðeldur, fjöldasöngur og margt fleira.

Nú er verið að fullmóta dagskrána og eru þeir rekstraraðilar/menningarstofnanir á Siglufirði sem hafa hugsað sér að vera með viðburð á Síldarævintýrinu beðnir að láta stýrihóp Síldarævintýrsins vita með skilaboðum hér á síðu Síldarævintýrisins.

Hægt er að fylgjast með gangi mála á facebook síðu Síldarævintýrisins á Siglufirði.

Mynd/Síldarævintýrið