Fjöldi manns kom og fagnaði 60 ára afmæli Sjálfsbjargar á Siglufirði laugardaginn 9. maí. Boðið var upp kaffiveitingar þar sem veisluborðið nánast svignaði undan girnilegum tertum og brauðréttum.
Í stjórn Sjálfsbjargar á Siglufirði eru: Hafdís E. Gísladóttir formaður, Sigurrós Sveinsdóttir varaformaður, Guðný Guðmundsdóttir ritari, Katrín Andersen gjaldkeri, Björg Einarsdóttir meðstjórnandi, María Lillý Ragnarsdóttir meðstjórnandi og Finnur Óskarsson.
Sjálfsbjörg á Siglufirði er með vinnustofu sem er opin alla virka daga frá kl. 13.00 – 16.00, þar sem daglega mæta 10 – 15 manns og allir eru velkomnir.
Texti og myndir: Kristín Sigurjónsdóttir