Heilbrigðiseftirlitið tók sýni þann 12. júlí 2024 í íbúðarhúsi norðarlega á Siglufirði og daginn eftir fékk eftirlitið munnlega tilkynningu frá rannsóknarstofu um að E. coli baktería hefði greinst í vatninu.

Í samræmi við samræmdar leiðbeiningar stjórnvalda eru neytendur upplýstir um málið, en Heilbrigðiseftirlitið hefur þegar tekið fleiri sýni m.a. á Heilbrigðisstofnun Norðurlands til þess að staðfesta og fá nánari hugmynd um umfang mengunarinnar.
Í samræmi við 14. gr. reglugerðar um neysluvatn nr. 536/2001,ráðleggur Heilbrigðiseftirlitið í varúðarskyni að neysluvatnið á Siglufirði, sé soðið fyrir neyslu.

Heilbrigðiseftirlitið mun láta íbúa vita þegar nauðsynlegum aðgerðum til úrbóta á vatnsveitunni er lokið, sem tryggja endurheimt vatnsgæða.