Á 910. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar lá fyrir umsókn frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar um styrk úr bæjarsjóði til uppsetningar húsnæðis við svokallaðan Jónslund, einnig nefndan Nonna-lund.

Fram kom að bæjarráð hafði áður samþykkt styrk til verkefnisins í desember 2024, en framkvæmdin fór ekki fram á árinu 2025.

Bæjarráð samþykkti að veita verkefninu styrk að upphæð 1.400.000 krónur, líkt og áður hafði verið samþykkt. Jafnframt minnti ráðið á að samþykktur fjárstuðningur til tiltekinna verkefna flyst ekki sjálfkrafa milli fjárhagsára, ef ekki tekst að ráðast í framkvæmd þeirra innan viðkomandi árs.

Styrkveitingin rúmast innan fjárhagsáætlunar ársins 2026 fyrir æskulýðs- og íþróttamál.

Drónamynd: Magnús G Ólafsson