Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði verður lokað næstu daga vegna veðurs og aukinnar snjóflóðahættu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skíðasvæðinu í Skarðsdal.
Samkvæmt tilkynningunni er veðurútlit næstu daga óhagstætt til skíðaiðkunar og því hafi verið ákveðið að loka svæðinu tímabundið. Þá ríkir einnig ákveðin óvissa vegna snjóflóðahættu. Á meðan verður leyft að snjóinn setjist og jafnist í hlíðunum.
Þrátt fyrir lokunina er staðan á snjónum afar góð. Að sögn forsvarsmanna svæðisins hefur safnast upp óvenju mikið snjómagn í vetur og mörg ár séu síðan sambærilegt magn sást í Skarðsdal.
Að sögn forsvarsmanna svæðisins er páskahátíðin fram undan gulltryggð. Stefnt er að því að skapa mikla hátíðarstemningu í dalnum með lifandi tónlist og fjöri þegar líður að páskum.
Aðstandendur svæðisins segja nú ekkert annað í stöðunni en að brýna kantana, bræða undir og hlakka til páskahátíðarinnar í Skarðsdal þar sem sannkölluð carnival stemning er fyrirhuguð. Sjón verði sögu ríkari.




