Matvælastofnun vekur athygli á að skordýr hafa fundist í Sólgæti döðlum frá Heilsu ehf. Fyrirtækið hefur innkallað döðlurnar af markaði, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

.

 

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Sólgæti
  • Vöruheiti: Döðlur
  • Strikanúmer: 5024425287810
  • Nettómagn: 500 g
  • Best fyrir: 15.08.2019
  • Lotunúmer: 7227
  • Framleiðsluland: Bretland
  • Innflytjandi: Heilsa ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík
  • Dreifing: Verslanir Nettó, Kjörbúðin Blönduósi, Seljakjör, verslanir Heilsuhússins, Fjarðarkaup, Melabúðin, Verslun Einars Ólafssonar og Pétursbúð

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar veitir Heilsa ehf. í síma 517 0670 og á netfanginu heilsa@heilsa.is.