Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að skilgreina hvaða kröfur Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) þurfi að uppfylla til að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu sem varasjúkrahús Landspítala (LSH). Í lögum um heilbrigðisþjónustu er kveðið á um að SAk sé varasjúkrahús LSH en hvergi er skilgreint hvað felist í því hlutverki. „Þetta þarf að vera skýrt ef á reynir, þ.e. hvaða þjónustu sjúkrahúsið þarf að geta veitt og hvaða búnaður þarf að vera fyrir hendi, einkum á sviði bráðaþjónustu“ segir heilbrigðisráðherra.
Starfshópurinn skal í vinnu sinni taka mið af þjóðaröryggisstefnu, almannavarnarlögum og viðbragðsáætlunum jafnframt því að meta möguleika Landspítala og annarra stofnana til að bregðast við ófyrirséðum aðstæðum.
Lögum samkvæmt starfa heilbrigðisstofnanir í öllum umdæmum landsins sem sjá um að veita og skipuleggja fyrsta og annars stigs heilbrigðisþjónustu við íbúa hvers umdæmis. Aftur á móti eru það aðeins sjúkrahúsin tvö; LSH sem aðalsjúkrahús og SAk sem varasjúkrahús, sem lögum samkvæmt veita hvoru tveggja annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu.
Á SAk er bráðamóttaka, gjörgæslurými, lyflækningadeild, geðdeild, skurðdeild, fæðingardeild og barnadeild. Þar er einnig öflug rannsóknarþjónusta og lyfjaþjónusta. Við heilbrigðisstofnanir landsins er aðeins fyrir hendi hluti þessarar þjónustu sem skapar Landspítala og SAk sérstöðu á landsvísu.
Stjórnendur SAk hafa lengið kallað eftir því að hlutverk spítalans sem varasjúkrahús LSH verði skilgreint, líkt og nú hefur verið ákveðið.
Skipan starfshópsins
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er formaður starfshópsins. Hún hefur víðtæka reynslu af stjórnunarstörfum innan heilbrigðiskerfisins og var um árabil í framvarðarsveit Landspítala þar sem hún gegndi m.a. tímabundið embætti forstjóra. Aðrir fulltrúar í starfshópnum eru:
- Þórir S. Sigmundsson, tilnefndur af Landspítala
- Hildigunnur Svavarsdóttir, tilnefnd af Sjúkrahúsinu á Akureyri
- Margrét Helga Ívarsdóttir, tilnefnd af Sjúkratryggingum Íslands
- Björn Geir Leifsson, tilnefndur af embætti landlæknis
- Björg Guðjónsdóttir, tilnefnd af Nýja Landspítalanum ohf.
- Guðrún Lísbet Níelsdóttir, tilnefnd af Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra
- Guðjón Hauksson, tilnefndur sameiginlega af Heilbrigðisstofnunum Austurlands, Vestfjarða og Norðurlands.
Helga Harðardóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, er starfsmaður hópsins.
Mynd/SAk