GANGNASEÐILL ÁRIÐ 2021.

Göngur hefjast á Víðidalstunguheiði mánudaginn 6. September

Þann dag fara rekstrarmenn gangnahrossa, sem jafnframt eru undanreiðarmenn, af stað frá Hrappsstöðum kl.11:00.

Næsta dag verður seinniflokkur keyrður fram og farið verður frá Hrappsstöðum kl.17.

Farangur, þar með talin reiðtygi og öll gangnahross verða að vera komin kl. 10 mánudaginn 6. September í Hrappsstaði.

Í fyrri göngum skal smalað bæði sauðfé og hrossum. Sauðfé verður réttað í Valdarásrétt föstudaginn 10. Sept kl. 09:00 og í Víðidalstungurétt laugardaginn 11. sept. Hefjast réttarstörf þar kl. 10:00.

Seinni göngur hefjast föstudaginn 17. september og verður heiðin leituð á þremur dögum.

Fæði verður í göngum í öllum náttstöðum á heiðinni.

Föstudaginn 1. október skulu þeir sem tilgreindir eru á gangnaseðli sækja stóð í löndin norðan heiðargirðingar. Þeir smali einnig sauðfé. Þeir sem eru tilgreindir til að smala Stóru – Hlíð og Krók smali öllu vestur í Krók.

Stóðið verður réttað í Víðidalstungurétt laugardaginn 2. okt og verður stóðið rekið til réttar kl 11:00 þann dag. Talning hrossa fer eingöngu fram í aðalrétt og verður gefinn 30% afsláttur af framtöldum hrossum sem ekki hafa gengið á heiði.

Óheimilt er að taka hross úr réttinni fyrir talningu þeirra.

Fyrri heimalandasmölun fer fram laugardaginn 25. september og réttað verður í Víðidalstungurétt sunnudaginn 26. sept kl: 10:00.

Seinni heimalandasmölun verður laugardaginn 9. október og réttað í Víðidalstungurétt sunnudaginn 10. okt kl:10:00.

Ítrekum skyldur landeigenda til að gera skil á sínum löndum.

Þeir sem tilgreindir eru á gangnaseðli til að smala Litlu-Hlíðar land geri það föstudaginn fyrir heimalandasmalanir.

Þeir seinniflokksmenn sem ætla sér að fara ríðandi fram láti Ísólf á Lækjamóti vita í síma: 899-1146 fyrir kl: 20 sunnudagskvöldið 5. September

Ætli menn að ríða með rekstramönnum þurfa þeir að ræða það við gangnastjóra.

Fólk sem hyggst fara með gangnamönnum skal afla sér leyfis gangnastjóra. Einnig er þeim bent á að panta fæði hjá ráðskonu (Jóhanna: 866 2912) með góðum fyrirvara. Allar nánari upplýsingar veitir Ísólfur í síma: 899-1146.

Hey- og fæðisgjald fyrir aukafólk sem fer með gangnamönnum er kr. 3.500 per dag.

Athygli skal vakin á því að engan má senda í göngur yngri en 16 ára samkvæmt 16.gr Fjallskilareglugerðar Húnaþings vestra.

Gangnastjórar og aðrir sem tilgreindir eru í gangnaseðli til að hafa umsjón með fjallskilum, skipa nánar fyrir um framkvæmd þeirra.

Skoðunarmenn á óskilafé sjá einnig um skráningu þess og skila til fjallskilastjórnar.

Tímakaup vegna aukaverka: verður 2.800 kr. fyrir mann og fyrir hjól 3.000 kr., hvort tveggja samkvæmt reikningi.

Mælst er til þess að gangnamenn komi með nothæfar talstöðvar þar sem það léttir undir við smölun.

Gangnamenn fá vesti við upphaf gangna. Mikilvægt er að þeim sé skilað að göngum loknum. T.d í kaffiskúrinn við Víðidalstungurétt eða til Stínu í Miðhópi.

Varðandi stóðsmölun í Gafli: Ef ekki næst að klára að koma fé í aðhald áður en hliðið á Bergárbrú verður opnað, verður mannskapnum skipt upp eftir þörfum. Hluti þeirra fer með stóðið niður í Kolugil, hinn hluti mannskapsins klárar smölun á fé og heldur svo áfram með stóðið frá Kolugili.

Stóðinu verður hleypt í gegn um hliðið á Bergárbrú kl:15:00

Farið verður frá Kolugili kl: 16:30

Þetta skipulag er gefið út með fyrirvara um að smölun gangi eðlilega fyrir sig.

Breytingar á gangnaseðli eru eftirfarandi:

Austur-Húnvetningar leggja til 2 menn á Hjólum á þriðjudag og miðvikudag í fyrri göngum. Við hagræðum á móti með því að fækka um 2 í undanreið og 1 í seinniflokk á miðvikudegi. Lagt er á hjól á austurheiði, kemur það fram í Haugakvíslarskála og smalar þaðan á fimmtudegi og föstudegi.