Fjallabyggð leitaði verðtilboða í endurnýjun þaks á íþróttahúsi Ólafsfjarðar og barst eitt tilboð í verkið frá Trésmíði ehf, með Þaksmiðjuna ehf sem undirverktaka.

Tilboðið hljóðar upp á kr. 35.985.000.

Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkti að taka tilboði Trésmíði ehf í verkið á þeim forsendum sem fram koma í tilboðinu. Gert er ráð fyrir framkvæmdunum í fjárfestingaáætlun 2025.