Í gær leit Eyjólfur Þórarinsson hjá verkfræðistofunni Stoð ehf. við á skrifstofu Húnaþings vestra, en hann hefur starfað sem skipulagsfulltrúi Húnaþings vestra sl. 7 ár.

Með tilkomu nýrrar skrifstofu byggingar- og skipulagsfulltrúa í Húnavatnssýslum verða breytingar þar á og hefur Bogi Kristinsson Magnusen tekið við starfi skipulagsfulltrúa fyrir sveitarfélögin í Húnavatnssýslunum.

Eyjólfi voru þökkuð farsæl störf í þágu Húnaþings vestra og Bogi boðinn velkomin til starfa.

Mynd/Húnaþing vestra