Í síðustu viku fór 6. bekkur Grunskóla Fjallabyggðar í vettvangs- og vísindaferð í nærumhverfinu, til að skoða og fræðast um vatnsaflsvirkjanir.
Kristján stöðvarstjóri í Skeiðfossvirkjun tók vel á móti nemendum og fræddi þá um rafmagnsframleiðslu virkjunarinnar sem er 76 ára gömul og er enn mikilvægur hlekkur fyrir rafmagnsframleiðslu fyrir Siglufjörð, Ólafsfjörð og nærumhverfi.
Áhugasamir nemendur á ferð og líflegar umræður eins og sjá má á eftirfarandi myndum.
Myndir/Grunnskóli Fjallabyggðar