Læðan Skriða sem búsett er á Hvammstanga er týnd og hennar er sárt saknað. Hvarf hún að heiman á miðvikudaginn 1. maí.
Það er mjög ólíkt henni að vera úti lengur en í mesta lagi tvo klukkutíma, en á dögunum hvarf hún að heiman og fannst innilokuð í pakkhúsinu á Hvammstanga. Hún er mjög heimakær og steingeld svo ekki er hún á flakki af þeim sökum.
Sterkur grunur er um að hún hafi lokast einhversstaðar inni. Íbúar Hvammstanga og nágrennis eru beðnir um að svipast eftir henni í geymslum, bílskúrum, lokuðum herbergjum á vinnustöðum og þessháttar.
Hún er loðin, dökkyrjótt með gula ól með endurskini, og merkispjaldi með hjarta sem á stendur Skriða og símanúmer eigenda Skriðu, Birtu Þórhallsdóttur 865-4098.
Allar ábendingar um ferðir hennar eru líka vel þegnar eða ef einhverjum dettur einhver staður í hug þar sem hægt er að leita að henni. Hún gæti auðvitað líka hafa óvart stokkið upp í skott á bíl eða í flutningabíl og endað einhversstaðar annarsstaðar.