Rúnar Guðmundsson hefur verið ráðinn í starf skipulagsfulltrúa hjá Sveitarfélaginu Skagafirði.

Rúnar er menntaður byggingarfræðingur frá Horsens í Danmörku. Rúnar hefur mikla reynslu af skipulags- og byggingarmálum í gegnum störf sín í níu ár hjá Rangárvallasýslu og 4 ár hjá 6 sveitarfélögum í uppsveitum Árnessýslu þar sem hann gegndi störfum forstöðumanns umhverfissviðs, skipulags- og byggingarfulltrúa og síðast sem skipulagsfulltrúi. Á þessum tíma hefur hann komið að vinnu við ný aðalskipulög ásamt vinnu við endurskoðun margra aðalskipulaga hjá hinum ýmsu sveitarfélögum á Suðurlandi. Þá er ótalin mörg deiliskipulög víða á Suðurlandi, bæði í þéttbýli og í dreifbýli.

Rúnar hefur góða reynslu af stjórnun og áætlanagerð ásamt því að þekkja vel til opinberrar stjórnsýslu í gegnum störf sín hjá sveitarfélögum til margra ára.

Rúnar mun taka til starfa sem skipulagsfulltrúi  á fyrstu mánuðum ársins 2020 og tekur við embættinu af Jóni Erni Berndsen sem gegnt hefur starfinu frá 1. desember sl. og þar áður embætti skipulags- og byggingarfulltrúa hjá sveitarfélaginu til fjölda ára.

Sjá einnig á skagafjordur.is