Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að einfalda umsóknarferli vegna styrkja sem veittir eru til niðurgreiðslu á næringarefni eða sérfæðis fyrir einstaklinga sem á því þurfa að halda.

Með breytingunni verður það á hendi þess heilbrigðisstarfsmanns sem vinnur að lausn á næringarvanda einstaklings að annast umsóknina. Krafa um læknisvottorð fellur brott nema í undantekningartilvikum þar sem Sjúkratryggingar Íslands telja vottorð læknis nauðsynlegt. Breytingin er gerð í samræmi við ábendingu Landspítala.

Reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um þessa breytingu hefur verið send Stjórnartíðindum og öðlast gildi við birtingu.

Mynd/istock