Haraldur Briem fyrrverandi sóttvarnalæknir hefur fallist á beiðni heilbrigðisráðherra um að vinna skýrslu til Alþingis um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi.

Gerð skýrslunnar er í samræmi við beiðni Alþingis þessa efnis. Skýrslubeiðendur óskuðu eftir því að skýrslan yrði unnin af óháðum aðila og varð niðurstaða ráðherra sú að leita til Haraldar um verkefnið.

Óskað hefur verið eftir framlengdum tímafresti á skilum skýrslunnar til þingsins.

Gert er ráð fyrir að hún verði tilbúin til afhendingar í lok fyrstu viku júnímánaðar.

Mynd/aðsend