• Gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir mestan hluta landsins í dag og morgun
  • Mikil úrkoma og hláka geta valdið vatnavöxtum, krapaflóðum og skriðuhættu, sérstaklega á Suður – og Suðausturlandi og Austfjörðum
  • Búist er við órólegu veðri um helgina, með hvassviðri og talsverðri úrkomu. Sjá veðurspá.
  • Vatnavextir vegna úrkomu og hlýinda – mikilvægt að hreinsa niðurföll og fráveituskurði
  • Aðstæður á vegum geta verið erfiðar, ökumenn hvattir til að aka varlega

Hvöss suðaustanátt verður fram til kvölds með hríðarveðri víða um land. Á láglendi suðvestantil má búast við slyddu eða rigningu. Það hlýnar í veðri, hiti verður á bilinu 0-5 stig síðdegis. Undir kvöld snýst í mun hægari vestanátt með stöku éljum vestantil, og kólnar tímabundið.

Á morgun, föstudag, má búast við suðaustanstormi eða jafnvel roki, auk hláku um allt land. Seinnipartinn eykst vindhraðinn í 18-25 m/s með talsverðri rigningu. Hvassast verður norðvestantil, en úrhellisrigning á Suðausturlandi. Austantil verður veðrið rólegra og þurrt fram til kvölds. Hiti verður á bilinu 5-10 stig annað kvöld.

Vatnavextir, krapaflóð og skriðuhætta vegna hláku og úrkomu

Vegna mikillar úrkomu og hlýinda er varað við vatnavöxtum á stærstum hluta landsins. Sérstaklega er búist við mikilli úrkomuákefð í kringum Mýrdalsjökul og á Suðausturlandi. Í því vetrarástandi sem ríkt hefur að undanförnu með frosnum jarðvegi og litlu írennsli í jarðveg gæti óvenju stór hluti úrkomunnar skilað sér sem aukið rennsli og hækkun vatnshæðar í ám og lækjum.

Snjór er á öllu landinu og á Suður- og Suðausturlandi og Austfjörðum getur skapast hætta á krapaflóðum þegar hlánar skarpt og rignir talsvert ofan í snjóinn um helgina. Að auki getur skapast grjóthruns- og skriðuhætta á þeim svæðum sem verða snjólaus í hlákunni.

Spáð er áframhaldandi umhleypingum um helgina með hvössum sunnanáttum, talsverðri rigningu, hlýindum og asahláku. Fólk er hvatt til að hreinsa frá niðurföllum og fráveituskurðum til að fyrirbyggja vatnstjón.

Vegna mikillar veðurhæðar eru ferðalangar hvattir til aka með gát, einkum ef ökutækin taka á sig vind. Að auki er vakin athygli á að mikil hálka getur myndast á vegum úti og eru ökumenn hvattir til að aka eftir aðstæðum.

Veðurstofan fylgist grannt með þróuninni allan sólahringinn og ef ástæða þykir til, verður viðvaranastig og tímasetningar viðvarana endurskoðað. Nánari tímasetningar fyrir hvert svæði má sjá á vedur.s