Alla sunnudagsmorgna kemur slökkvilið Dalvíkur saman á slökkvistöðinni við Gunnarsbraut til æfinga og yfirferðar á búnaði.
Næstkomandi sunnudag, 2. des. milli kl 10:00 og 12:00 er fyrirhugað að hafa opna stöð og bjóða áhugasömum að líta inn og kynna sér starfsemi og búnað liðsins.
Sérstaklega er fólk hvatt til að líta við sem hefur áhuga á að starfa í liðinu.
Slökkvilið Dalvíkur