Smíðavellirnir á Ólafsfirði verða í umsjón hestamannafélagsins Gnýfara á Frímerkinu.
Smíðavöllurinn á Ólafsfirði verður opinn frá kl. 10:00 – 12:00 eftirfarandi daga:
11. – 13. júní, 18. – 20. júní og 23. – 26. júní
Smíðavellirnir á Siglufirði verða í umsjón SSS á túninu við Mjölhúsið.
Smíðavöllurinn á Siglufirði verður opinn frá kl. 10:00 – 12:00 eftirfarandi daga:
11. – 13. júní, 16. júní og 18. – 20. júní.
Að námskeiðum loknum verður grillveisla á hvorum stað fyrir börn og foreldra. Ekki þarf að skrá börnin og er þátttaka ókeypis.
Börn sem sækja smíðavellina eru á ábyrgð foreldra og er frjálst að koma og fara á þeim tíma sem smíðavellir eru opnir.
Börn sem sækja smíðavelli fá timbur og nagla á staðnum en þurfa sjálf að koma með hamar og sög.