Óvissustig er í gildi á Siglufjarðarvegi vegna snjóflóðahættu, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni sem birt var í morgun, 7. apríl klukkan 07:12.
Vegagerðin lýsti einnig yfir óvissustigi í Ólafsfjarðarmúla vegna snjóflóðahættu síðdegis í gær.
Síðar í morgun bárust nýjar upplýsingar frá Vegagerðinni þar sem fram kemur að óvissustig í Ólafsfjarðarmúla hafi verið aflétt klukkan 09:00 í dag.
Nánari upplýsingar um stöðu vega má nálgast á vef Vegagerðarinnar.
Tengt efni:
Mynd: Skjáskot af korti Vegagerðarinnar að morgni 7. apríl
