Síðustu tvö ár hafa verið fremur snjólétt á Tröllaskaga og hafa skíðasvæðin norðan heiða átt erfitt með snjóleysið.
Þessir mildu vetur koma sér þó sérlega vel fyrir sveitarfélögin vegna lágs moksturskostnaðar.
Einnig er gott að komast leiðar sinnar án þess að þurfa að moka upp farartæki eða festast í snjósköflum hér og þar.
Allt hefur sína kosti og galla, bæði snjórinn og snjóleysið.
En eitt getum við verið sammála um að þeir sem viðhalda færð í sveitarfélaginu eru snillingar í mokstri eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Fréttaritari tók þær fyrir 14 árum upp á dag, 22. janúar 2012 á Laugarveginum á Siglufirði.













