Áætlað er að söfnun á rúlluplasti fari fram vikuna 8. – 12. júlí nk. í Húnaþingi vestra.
Þeir bændur sem óska eftir því að nýta sér þjónustuna vinsamlega tilkynni það til skrifstofu Húnaþings vestra
í síma 455-2400, eða á netfangið: skrifstofa@hunathing.is, fyrir 5. júlí nk.
Söfnunin kemur til með að hefjast í Hrútafirði og fikrast til austurs fram eftir vikunni eins og áður.
Frekari upplýsingar gefa starfsmenn Gámaþjónustunnar í síma: 452 2958