Athygli er vakin á því að samkvæmt sorphirðudagatali verður söfnun rúlluplasts í Húnaþingi vestra í eftirtöldum vikum á árinu 2023:

  • 24.-28. apríl
  • 26.-30. júní
  • 20. -24. nóvember

Eins og áður skulu þeir sem óska eftir þjónustunni tilkynna það til skrifstofu Húnaþings vestra í síma: 455-2400 eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is þar sem fram kemur bæjarheiti, nafn og símanúmer eiganda.

Mikilvægt er að plastið sé hreint og laust við aðskotahluti svo efnið sé hæft til endurvinnslu.

Frekari upplýsingar um flokkun á rúlluplasti má finna hér.