Félagarnir í Hr. Eydís eru gjarnan með föstudagslag. Nýliðinn föstudag var það algjör ´80s „power“ ballaða, lagið Alone með Heart.

Lagið er komið í spilun á FM Trölla.

Það er sko aldeilis ekki á færi hvaða söngkonu sem er að syngja þetta lag, lagið þykir mjög erfitt og þá sérstaklega hái tónninn í öðru viðlagi.

Við fengum söngkonuna Sigríði Guðnadóttur (Sigga Guðna) sem fólk þekkir hingað til aldeilis ekki úr ´80s deildinni. Sigga skaust fram á sjónasviðið með Jet Black Joe á tíunda áratugnum með laginu Freedom. En hún kann sko líka að syngja Alone með Heart og svona líka svakalega vel.

Lagið Alone með Heart er reyndar tökulag eða ábreiða. Það kom upprunalega ekki út með Heart heldur með sveitinni i-Ten árið 1983. Þeirra útgáfa gerði ekki mikið en miðað við magn ábreiðna af þessu lagi hefur snemma verið augljóst að það var eitthvað í laginu sem greip fólk.

Ábreiðan með Heart kom út árið 1987 og fór á toppinn bæði í Bandaríkjunum og á Bretlandseyjum. Heart ákvað reyndar að fara með lagið í aðra átt, gera þetta að „power“ ballöðu, en þær voru ákaflega vinsælar á þessum tíma….sérstaklega hjá rokkhljómsveitum.

„Við spiluðum þetta lag með Siggu á árshátíð ISAVIA í vor og við misstum allir hökuna, Sigga renndi sér svo fimlega í gegnum lagið og tók háu nótuna í laginu eins og að drekka vatn. Við bara urðum að fá hana til að taka þetta upp með okkur.“ segir Páll Sveinsson trommari Hr. Eydís.

Árið 2007 tók engin önnur en Celine Dion lagið upp á sína arma, en hennar útgáfa þótti því miður ekki bæta neinu við og það þrátt fyrir gríðarlega sönghæfileika Celine Dion.

Við tókum þetta lag upp á tónleikastaðnum Sviðinu sem er í nýja miðbænum á Selfossi. Alveg frábær staður fyrir tónleika og kunnum Þóri á Sviðinu miklar þakkir fyrir að leyfa okkur að nota staðinn fyrir þessa upptöku. Gaman að breyta aðeins til og komast út úr bílskúrnum þar sem við höfum fram að þessu tekið upp ´80s ábreiðurnar okkar.

Hlekkur á nýjasta 80´s lagið: https://youtu.be/DLwQlMwZj8U

Rás hljómsveitarinnar á Youtube: https://www.youtube.com/@eydisband

Instagram: eydisband

Facebook: Hr. Eydís (hreydisband)

TikTok: eydisband


Aðsent