Tilkynning Veðurstofunnar:
Hríð á Norður- og Austurlandi (Gult ástand)
3 jún. kl. 17:00 – 5 jún. kl. 23:59
Spár gera ráð fyrir að djúp lægð taki sér stöðu fyrir austan land síðdegis á mánudag. Undir kvöld á mánudag má búast við norðan og norðvestan hvassviðri eða stormi (meðalvindur 15-23 m/s) víða um land, þó er útlit fyrir heldur hægari vind á vestasta hluta landsins. Með kaldri norðanáttinni fylgir talsverð úrkoma á Norður- og Austurlandi.
Lengst af rigning eða slydda nærri sjávarmáli, en snjókoma inn til landsins. Óvissa er varðandi hæð snjólínunnar, líkur eru á að hæðin verði breytileg innan viðvörunartímabilsins og ekki er útilokað að um tíma snjói langleiðina niður að sjávarmáli.
Líkur eru á því að veðrið verði langvarandi og margar spár sýna að því sloti ekki fyrr en á föstudag. Ef spár rætast, er um að ræða óveður sem er mjög óvenjulegt á þessum árstíma, bæði hvað varðar vindstyrk og einnig lágt hitastig samfara talsverðri úrkomu. Huga þarf að lausamunum sem geta fokið.
Ferðalög geta verið varasöm, sérílagi á ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindi. Snjóþekja getur sest á vegi á Norður- og Austurlandi, einkum fjallvegi. Huga þarf að því að koma búfénaði í skjól. Útivistarfólki er bent á að fara yfir áætlanir sínar með tilliti til kulda og vosbúðar sem óveðrinu fylgir