Spennandi starf í Skólabúðum UMFÍ í Reykjaskóla
Möguleiki er á að starfsmaðurinn fái húsnæði á staðnum.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Guðmundsson forstöðumaður skólabúðanna, siggi@umfi.is
Frístundaleiðbeinandi óskast
Frístundaleiðbeinandi vinnur með nemendum 7. bekkjar úr skólum af öllu landinu, hefur umsjón með dagskrá og vinnur með umsjónarfólki nemendahópa í Skólabúðunum.
Leitað er að leiðtoga og góðri fyrirmynd sem uppfyllir skilyrði íþrótta- og æskulýðslaga um sakavottorð. Möguleiki er á að starfsmaðurinn fái húsnæði á staðnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Frístundaleiðbeinandi vinnur með nemendum 7. bekkjar úr skólum af öllu landinu, hefur umsjón með dagskrá og vinnur með umsjónarfólki nemendahópa í Skólabúðunum
Hæfniskröfur:
* Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg.
* Reynsla af sambærilegu starfi eða þjálfun er kostur en ekki krafa.
* Frumkvæði og hressleika er plús í kladdann.
* Viðkomandi þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni og þjónustulund og hafa gaman af því að vinna með ungu og skemmtilegu fólki.