Skólablak var haldið í íþróttahúsinu á Siglufirði á fimmtudaginn þar sem 4., 5. og 6. bekk var boðið að koma og kynnast þessari skemmtilegu íþrótt. Rúmlega 60 krakkar tóku þátt.

Skólablak er viðburður á vegum BLÍ – Blaksambands Íslands þar sem farið er hringinn í kringum landið og blakíþróttin kynnt fyrir nemendum, og var Fjallabyggð valin til að kynna íþróttina.

Það voru þeir Pálmi Blængsson starfsmaður Blí og Oscar Fernendes þjálfari og leikmaður KA sem komu og kynntu íþróttina.

Myndir og heimild/Blakfélag Fjallabyggðar