Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, óska eftir að ráða drífandi einstakling í starf framkvæmdastjóra. Leitað er að dugmiklum einstaklingi í krefjandi stjórnunar- og leiðtogastarf þar sem reynir á samskiptahæfni, frumkvæði og forystuhæfileika.
Um er að ræða spennandi starf sem gefur réttum aðila tækifæri til að vera leiðandi í uppbyggingu og þróun á svæðinu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. september 2022. Ráðið er í starfið til fimm ára í senn.
Starfssvið
- Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun samtakanna.
- Skipulagning og verkefnastýring.
- Stefnumótunarvinna.
- Samskipti og samstarf við hagaðila (atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög, opinberar stofnanir og aðra hagaðila).
- Önnur verkefni í samráði við stjórn.
Sjá nánar um hlutverk framkvæmdastjóra í 18. gr. samþykkta SSNE: Samþykktir | SSNE.is
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi.
- Leiðtogahæfni og færni til að hvetja aðra til árangurs.
- Reynsla af stjórnun
- Reynsla af rekstri æskileg.
- Reynsla af mótun stefnu og innleiðingu hennar æskileg.
- Þekking og reynsla af atvinnu-, menningar- og/eða byggðamálum æskileg.
- Góð þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg.
- Frumkvæði, drifkraftur og metnaður.
- Lipurð og mikil færni í mannlegum samskiptum
- Heiðarleiki og gott orðspor
- Gott vald á tjáningu í ræðu og riti á íslensku
Allir áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2022.
Sótt er um starfið á www.mognum.is og nánari upplýsingar veitir Sigríður Ólafsdóttir hjá Mögnum, sigga@mognum.is .