Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) leita að starfsmanni í bókhald og almenn skrifstofustörf á Hvammstanga.
Helstu verkefni eru umsjón og færsla bókhalds samtakanna, skjalavarsla, almennt skrifstofuhald og ýmiskonar aðstoð við framkvæmdastjóra. Um 50% starf er að ræða.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, viðurkenndur bókari er kostur.
- Haldbær reynsla af færslu bókhalds í Navision bókhaldskerfi eða sambærilegum kerfum.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Nákvæmni og greiningarhæfni.
- Góð almenn tölvukunnátta, sérstaklega á Excel.
- Framúrskarandi hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2020.
Sótt er um starfið í gegnum heimasíðu Capacent.