Íbúakosning lýðræðisverkefnisins Fegrum Fjallabyggð fór fram dagana 13. – 26. mars. Alls tóku 356 manns þátt í kosningunni eða 21,5% íbúa 15 ára og eldri. Fimm verkefni hlutu kosningu og raðast á þær 20  milljónir sem úthlutað var til verkefnisins. Mörg áhugaverð verkefni sem ekki hlutu kosningu munu samt sem áður fá verðskuldaða umfjöllun í stjórnkerfi bæjarins.

Þau verkefni sem hlutu kosningu og verða framkvæmd á árunum 2023 og 2024 eru eftirfarandi:

Fegrum Fjallabyggð 2023-2024

NafnAtkvæðiKostnaður
Bæta leiksvæðin við Fossveg og Laugarveg – Siglufirði1115 millj.
Aparóla neðst í Gullatúninu hjá tjaldsvæðinu – Ólafsfirði1033,5 millj.
Lítil bátabryggja og aðgengi að Langeyrartjörn – Siglufirði1015 millj.
Minigolfvöllur við tjaldsvæðið – Ólafsfirði975 millj.
Flokkunarstöð fyrir ferðafólk – Ólafsfirði221 millj.
Samtals:43419,5 millj.

Nánari upplýsingar um niðurstöður kosninga og hvernig talningu atkvæða er háttað er að finna hér.