Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa skv. ákvæðum reglugerðar nr. 676/2019 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020. Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 463/2020 í Stjórnartíðindum.

Auglýst er eftir umsóknum fyrir:

Fjallabyggð (Siglufjörð og Ólafsfjörð)

Umsóknargátt fyrir byggðakvóta 

Eyðublað fyrir staðfestingu á vinnslusamningi  

Leiðbeiningar:

Sækja skal um byggðakvóta í gegnum gáttina  hér að ofan.  Til þess að opna umsóknareyðublaðið þarf að nota kennitölu og íslykil  útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um. 

Staðfesting á samningi um vinnslu afla skal vera undirrituð og staðfest af sveitarfélagi.

Staðfestingu á vinnslusamningi skal skila sem fylgiskjali í umsóknargátt á sama tíma og sótt er um byggðakvóta.

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi þar sem við á.

Nánari upplýsingar 

Umsókn og vinnslusamningi er skilað í gegnum rafrænu umsóknargáttina. 

Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2020