Fjallabyggð auglýsir eftir aðila/aðilum sem kunna að hafa áhuga á að taka að sér rekstur og umsjón með tjaldsvæðum Fjallabyggðar á Siglufirði. Um er að ræða tvö tjaldsvæði, í miðbæ Siglufjarðar og sunnan við snjóflóðavarnargarðinn Stóra Bola.
Sumarrekstur tjaldsvæða hefst að jafnaði 12. maí og lýkur 15. október, ef aðstæður leyfa.
Samningur er gerður til eins árs.
Helstu verkefni:
- Verktaki er ábyrgur fyrir að halda skrá yfir fjölda gesta tjaldsvæðanna og skilar greinargerð til Fjallabyggðar á hverju hausti.
- Gerð er krafa um sýnileika umsjónaraðila með kynningu á tjaldsvæðunum.
- Umsjónaraðili skal vera í samstarfi við Fjallabyggð varðandi kynningu tjaldsvæðanna á þjónustusíðu sveitarfélagsins.
- Gerð er krafa um að umsjónaraðili hagi rekstri sínum með þeim hætti að hann þjóni sem best breiðum hópi notenda svæðisins.
- Á opnunartíma svæðisins er gerð krafa um að salerni séu þrifin daglega og umgjörð tjaldsvæðanna sé hin snyrtilegasta.
- Umsjónaraðili skal annast og bera ábyrgð á allri innheimtu tjaldsvæða- og gistigjalda.
- Einnig sér umsjónaraðili um að viðhaldi innandyra á þjónustuhúsum sé sinnt s.s. þrif, málun og annað létt viðhald í samstarfi við Fjallabyggð.
Reynsla og þekking á ferðaþjónustu og rekstri er kostur.
Umsóknir skulu berast á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is. Með umsókn skal skila starfsferilsskrá þar sem menntun og reynsla umsækjanda er tilgreind ásamt stuttri greinargerð um sýn á rekstur tjaldsvæðanna.
Umsóknarfrestur er til 2. maí 2018
Frekari upplýsingar veita Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi í síma 4609100, lindalea@fjallabyggd.iseða Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála í síma 4649100, rikey@fjallabyggd.is
Frétt fengin af vef : Fjallabyggðar
Mynd: Kristín Sigurjónsdóttir