Tilkynning frá Hitaveitu Húnaþings vestra.

Heitt vatn verður tekið af Hvammstanga, Laugarbakka, Víðidal og Miðfirði þriðjudaginn 19. mars 2019 kl. 10:00.

Lagfæra þarf lagnir í dæluhúsi á Laugarbakka þriðjudaginn 19. mars. Viðgerð hefst kl. 10:00 og áætlað er að viðgerð taki um 1 klukkustund. Lengri tíma getur tekið að koma heitu vatni á alls staðar.

 

Þjónusturof hitaveitu – ábending til húsráðenda

  1. Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju með viðeigandi óhljóðum.
  2. Húsráðendum er bent á að við viðgerðir kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.
  3. Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við pípulagningameistara.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessu kann að fylgja.

Veitustjóri