Laust er til umsóknar starf veitustjóra sveitarfélagsins Húnaþings vestra.
Leitað er eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf veitustjóra Húnaþings vestra. Starfið tilheyrir umhverfissviði en heyrir beint undir sveitarstjóra. Veitustjóri ber ábyrgð gagnvart sveitarstjóra og sveitarstjórn í öllum störfum sínum og ákvörðunum.
Starfssvið:
- Ber ábyrgð á framkvæmdum og rekstri hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu en vinnur jafnframt að öðrum tilfallandi verkefnum í samráði við rekstrarstjóra
- Er yfirmaður annarra starfsmanna veitna
- Vinnur að undirbúningi fjárhagsáætlana fyrir veitur í samvinnu við framkvæmdaráð og aðra starfsmenn sveitarfélagsins eftir því sem við á
- Hefur eftirlit með ástandi veitukerfa og tryggir viðhald þess
- Ber ábyrgð og eftirlit með öryggismálum sem snerta veitur
- Verkefnastjórn sérverkefna, s.s. ljósleiðara
- Stefnumótun veitumála sveitarfélaginu í heild í samstarfi við sveitarstjórn og sveitarstjóra
- Samskipti og upplýsingagjöf til viðskiptavina og íbúa sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Iðnmenntun og/eða tæknimenntun er æskileg
- Reynsla á sviði veitna og framkvæmda er nauðsynleg
Reynsla af áætlanagerð, s.s. verk-, kostnaðaráætlunum - Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
- Forystu- og skipulagshæfileikar
- Þekking og reynsla af stjórnun og rekstri
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð tölvukunnátta
Umsóknum um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag. Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst.
Umsóknir skulu berast á netfangið rjona@hunathing.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri í síma 455-2400