Frístundin opnar degi fyrr en áætlað var í Grunnskóla Húnaþings vestra, þar sem námskeiði starfsmanna leik- og grunnskóla um innleiðingu á jákvæðum aga hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna COVID-19.

Báðar stofnanir opna kl. 10:00 fimmtudaginn 13. ágúst. Starfsfólk mun undirbúa móttöku nemenda eftir sumarfrí frá 8:00 – 10:00.

Stefnt er að því að halda námskeiðið síðar þegar samkomutakmarkanir leyfa og þá verða leikskóli og frístund lokuð. Ekki er vitað á þessari stundu hvenær það gæti orðið en verður auglýst með góðum fyrirvara.

COVID fjörið heldur áfram og minnt er á að 2 metra fjarlægðarregla er í gildi og foreldrar minntir á að virða hana við aðra foreldra við komu í skólana og við starfsfólk. Meðan sú regla er í gildi geta foreldrar ekki komið inn í skólann.

Nemendur sem ekki eru skráðir í sumarfrístund óskast skráðir á netfangið grunnskoli@hunathing.is. Eyðublað fyrir frístund eftir skólabyrjun verður auglýst sérstaklega í næstu viku.

Skólasetning verður mánudaginn 24. ágúst og tekið verður mið af samkomutakmörkunum með hvaða hætti skólasetning verður.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá annað hvort 24. ágúst eða 25. ágúst.