Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að fjalla um blóðtöku á fylfullum hryssum. Hópnum er ætlað að skoða starfsemina, regluverkið og eftirlitið í kring um hana.
Ráðherra kallaði eftir tilnefningum í starfshópinn frá Matvælastofnun og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Í hópnum eiga sæti:
- Iðunn Guðjónsdóttir, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu er formaður hópsins, skipuð án tilnefningar
- Sigríður Björnsdóttir, yfirdýralæknir í hrossasjúkdómum hjá Matvælastofnun (tilnefnd af MAST)
- Ólafur Páll Jónsson, prófessor við Háskóla Íslands, tilnefndur af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.
Ráðherra hefur falið hópnum að funda með hagaðilum auk þess sem almenningi mun gefast kostur á að tjá sig um störf og tillögur hópsins á Samráðsgátt stjórnvalda þegar þær liggja fyrir. Starfshópurinn mun hefja störf á næstu dögum og er ætlað að skila ráðherra tillögum sínum fyrir 1. júní nk.. Verkefni starfshópsins er aðskilið rannsókn Matvælastofnunar, en stofnunin rannsakar nú meint alvarleg brot á velferð blóðtökuhryssa.