Krónan og Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg, SSS, standa fyrir Stubbamóti laugardaginn 28. febrúar 2026 á Skíðasvæði Siglufjarðar í Skarðsdal. Um er að ræða skemmtilegt mót fyrir yngstu kynslóðina, börn fædd 2017 og yngri, þar sem gleði og þátttaka eru í forgrunni.
Mótið fer fram á neðra lyftusvæði og verður keppt í Stubbabraut þar sem farið verður tvær umferðir. Fyrir allra yngstu iðkendurna verður einnig boðið upp á stutta stubbabraut við töfrateppið, svo allir geti tekið þátt á sínum forsendum og notið dagsins.
Afhending mótsgagna og brautarskoðun fara fram á milli kl. 09:00 og 10:00. Keppni hefst kl. 10:30 hjá 6 ára og yngri, það er börnum fæddum 2019 og síðar. Kl. 12:00 taka 7 til 8 ára keppendur við, börn fædd 2017 og 2018.
Stubbamótið hefur á undanförnum árum verið einn af hápunktum vetrarins hjá yngstu iðkendunum og má búast við litríkum degi í Skarðsdal þar sem fjölskyldur og vinir mæta til að hvetja sitt fólk áfram. Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburði mótsins.





