Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur undirritað samning til styrktar VERU, úrræðis Foreldrahúss fyrir börn í áhættuhegðun. Samningurinn snýr að stuðningi við börn sem eru þolendur ofbeldis eða sem beita ofbeldi.

Stuðningurinn er liður í aðgerðum stjórnvalda til að sporna gegn ofbeldi og samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.

VERA er heildstætt langtíma meðferðarúrræði fyrir unglinga sem neyta fíkniefna. Foreldrasamtökin Vímulaus æska eru landssamtök sem hafa rekið Foreldrahús frá árinu 1999. Foreldrahús býður uppá víðtæka þjónustu fyrir alla fjölskylduna. Þar starfa vímuefna- og fjölskyldufræðingar, listmeðferðafræðingur og uppeldis- og sálfræðiráðgjafi.

Mynd/aðsend. Þar eru Guðrún Björg Ágústsdóttir hjá Foreldrahúsum og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.