Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum á árinu 2022.
Markmið styrkjanna er að fjölga nemendum í raunvísindum og stærðfræði. Heildarfjárhæð styrkja á árinu 2022 er allt að 7,5 m.kr. og eru styrkirnir veittir til að standa straum af ferðakostnaði vegna þátttöku í keppnunum.
Ef umsóknaraðili hefur áður fengið styrk þá þarf hann að hafa skilað greinargerð um hvernig styrknum var ráðstafað. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir aðra sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið.
Umsóknir skulu sendar til mrn@mrn.is í síðasta lagi föstudaginn 1. apríl 2022.
Nánari upplýsingar veitir Ásta María Reynisdóttir hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu: asta.reynisdottir@mrn.is / 545-9500.