Á fundi bæjarráðs Fjallabyggðar þann 11.nóvember 2021 var farið yfir umsóknir um styrki til félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts 2022.
Bæjarráð samþykkti að taka málið upp þegar búið væri að leggja á fasteignagjöldin með formlegum hætti í janúar 2022. Að nýju eru lagðar fram umsóknir félagasamtaka um styrki vegna fasteignaskatts á árinu 2022.
Á 731. fundi bæjarráðs var samþykkt að veita umsækjendum styrki vegna fasteignaskatts á árinu 2022 samtals kr. 3.779.281.- sem rúmast innan gildandi fjárhagsáætlunar 2022.
