Súkkulaðikaka í steypujárnspönnu
- 100 g smjör
 - 1 dl hveiti
 - 3 dl sykur
 - 3 msk kakó
 - 2 tsk vanillusykur
 - 1/2 tsk salt
 - 3 egg
 
Bræðið smjörið. Blandið þurrefnunum saman og hrærið þeim út í smjörið. Hrærið eggjunum saman við og hellið deiginu í steypijárnspönnu. Bakið við 175° í um 15 mínútur. Gerið súkkulaðikremið á meðan.

Súkkulaðikrem
- 200 g mjólkur- eða rjómasúkkulaði, gjarnan með hnetum í (ég var með mjólkursúkkulaði með salthnetum í)
 - 1 dl rjómi
 
Bræðið súkkulaði og rjómi saman í potti. Hellið blöndunni yfir kökuna þegar hún kemur úr ofninum. Látið standa í smá stund (þannig að mesti hitinn rjúki úr henni) en berið kökuna fram meðan hún er ennþá heit/volg.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit
						
							
			
			
			
			

