Það hefur heldur betur verið líf og fjör síðustu daga í Síldarminjasafni Íslands.

Í ár hafa árlegar aðventustundir fyrir leik- og grunnskólabörn farið fram í Salthúsinu.

Þessa viku og þá síðustu hefur Síldarminjasafnið boðið 260 nemendum úr leik- og grunnskólum Fjallabyggðar í heimsókn. Börnin hafa fengið fræðslu um jólakveðjur ýmiskonar; þau hafa fengið að sjá og heyra lesin tæplega 100 ára gömul jólakort, hlýtt á útvarpskveðjur og föndrað sín eigin kort. Þá er þeim er boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur – og að lokum sameinast í söng.