Húnaþing vestra auglýsir sumarstörf fyrir námsmenn 18 ára og eldri. Störfin eru hluti af atvinnuátaki sveitarfélagsins í samstarfi við Vinnumálastofnun til þess að fjölga tímabundið störfum fyrir námsmenn vegna COVID-19. Í boði eru 4 störf.
Störfin eru fjölbreytt og eru m.a.:
- Umhverfisstörf sem í felast fegrun umhverfis og ásýndar sveitarfélagsins.
- Skráning og skipulagning muna fyrir Byggðasafn Húnvetninga- og Stranda og/eða skráning hjá Bóka- og skjalasafni Húnaþings vestra. Starfið hentar vel nemendum í safnafræði, sagnfræði, þjóðfræði eða skyldum greinum.
- Brunavarnir Húnaþings vestra. Yfirfara og uppfæra ýmis gögn hjá Brunavörnum Húnaþings vestra og önnur tilfallandi verkefni undir leiðsögn slökkviliðsstjóra. Starfið hentar vel nemenda í verkfærði, tæknifræði eða skyldum greinum.
Eftirfarandi hæfniskröfur eru gerðar:
- Lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og kurteisi
- Færni til þess að vinna vel í hóp
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni, starfsgleði, kurteisi, frumkvæði og sveigjanleiki
- Samviskusemi og stundvísi
Skilyrði:
- Umsókn þarf að fylgja staðfesting á námi milli anna þ.e. nemendur verða að vera að koma úr námi og á leið í nám í haust. Þá þurfa að liggja fyrir upplýsingar um menntun og fyrri störf.
- Ráðningartími er 2 mánuðir og er miðað við að tímabilið sé 1. júní – 31. ágúst.
- Námsmenn þurfa að vera 18 ára á árinu.
- Laun eru aldrei lægri en kjarasamningar segja til um vegna viðkomandi starfs.
- Um ráðningar vegna vinnumarkaðsátaks gilda sömu reglur og um ráðningar starfsmanna sveitarfélaga.
- Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Umsóknir skulu berast á netfangið rjona@hunathing.is
Áhugasamir eru hvattir til þess að sækja um!
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um störfin hjá sveitarstjóra á netfanginu rjona@hunathing.is eða umhverfisstjóra á netfanginu ina@hunathing.is eða í síma 455 2400.
Umsóknarfrestur er til og með 28. maí 2020.