S. Guðrún Hauksdóttir sér um umhirðu nýja kirkjugarðsins á Siglufirði í sumar eins og síðustu ár.

Hún sér um þetta kröfuharða verkefni með mikilli prýði, er nú þegar byrjuð að vinna vorverkin í garðinum og undirbúa sumarið.

Ólafur Símon Ólafsson sér um slátt í gamla kirkjugarðinum á Siglufirði

Býður Gunna Hauks einnig upp á sumarblóma þjónustu enn og aftur í sumar fyrir báða kirkjugarðana. Það er því kjörið fyrir þá sem ekki komast til að snurfusa leiðin og setja þar blóm að kaupa þessa góðu þjónustu.

Þeir sem áhuga hafa eru vinsamlega beðnir um að hafa samband á facebook síðu kirkjugarða Siglufjarðar feða í Gunnu Hauksdóttur í síma 869 4441 eða í skilaboðum á facebooksíðu hennar.

Fyrsti sláttur sumarsins.

Myndir/Kirkjugarðar Siglufjarðar