Húnaþing vestra auglýsir sumarstörf við ýmis útiverkefni í sumar.  

Vinnan felst aðallega í því að vinna með sláttuvélar og vélarorf á opnum svæðum og stofnanalóðum sveitarfélagsins.

Þá er einnig unnið við almenn garðyrkjustörf og önnur umhverfistengd verkefni. 

Vinnutímabil: Frá byrjun júní og fram í ágúst. (eða eftir samkomulagi)
Vinnutími: 8:15-16:15 alla virka daga, á föstudögum er unnið til hádegis.  
Krafist er stundvísi, ástundunar og reglusemi.  

Sótt er um sumarstarf HÉR fyrir 18. maí 2020. 

Frekari upplýsingar gefur Ína Björk Ársælsdóttir, netfang: ina@hunathing.is og í síma: 455-2400. 
Upplýsingar um laun gefur Helena Halldórsdóttir, netfang: helena@hunathing.is og í síma: 455-2400.