Nú hefur Dalvíkurbyggð tekið í notkun talgervil á heimasíðu sinni og á síðum stofnana Dalvíkurbyggðar.
Talgervillinn er þróaður af blindrafélaginu sem lét hanna hann fyrir sig og býður hann bæði upp á kvenmannsrödd og karlmannsrödd á Íslensku og hægt að hlusta á allar fréttir, fundargerðir og annað efni á síðunni.
Talgervillinn býður einnig upp á að stækka textann ásamt því að hægt að er að breyta letrinu og gera efnið auðlesanlegra.
Þess má geta að vefsíða Fjallabyggðar er einnig með talgervil.