Um helgina fór fram Unglingamót Aftureldingar í Mosfellsbæ þar sem fjöldi ungra keppenda kom saman til leiks. Keppni var fjölmenn í flokkum U9 og U11 og þar á meðal voru Íris og Óli Þór sem skemmtu sér afar vel og stóðu sig með prýði.
Í flokkum U13 til U19 var keppt í einliða- og tvíliðaleik. Átta keppendur frá Tennis og Badmintonfélagi Siglufjarðar (TBS) tóku þátt og voru þær allar stelpur. TBS-ingar létu að sér kveða og náðu glæsilegum árangri, komust ítrekað á verðlaunapall og sýndu mikinn metnað og framfarir.
Kamilla hafnaði í öðru sæti í einliðaleik í U15-17A og endaði einnig í öðru sæti í tvíliðaleik ásamt Lilju Guðrúnu frá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar. Adríana varð í þriðja sæti í einliðaleik í U13A. Katrín og Þóra fögnuðu sigri í tvíliðaleik í U13C. Sigrún sigraði einliðaleik í U13E. Elena og Sara urðu í öðru sæti í tvíliðaleik í U13B og í einliðaleik enduðu þær einnig í öðru sæti, Sara í U13C og Elena í U13D.
Meðfylgjandi eru örfáar myndir frá mótinu. Næsta verkefni hjá iðkendum TBS er Landsbankamót ÍA sem fram fer um miðjan mars á Akranesi.
TBS fer af stað með fjáröflun. Brúsar með logói og nafni
Tennis og Badmintonfélag Siglufjarðar hefur hrundið af stað fjáröflun þar sem félagið hyggst panta svokallaða Polar Camel álbrúsa. Hægt verður að fá brúsa með logói félagsins og nafni viðkomandi, en einnig verður skoðað hvort hægt sé að verða við óskum um sérstaka merkingu fyrir þá sem þess óska. Logó TBS verður áberandi á brúsunum.
Um er að ræða vandaða brúsa sem halda bæði heitu og köldu afar vel og henta jafnt til æfinga, útivistar og daglegrar notkunar. Minni brúsinn er tæplega 600 millilítrar og kostar 7.500 krónur. Stærri brúsinn er rúmlega 900 millilítrar og kostar 8.700 krónur.
Brúsarnir geta verið tilvalin gjöf frá foreldrum til iðkenda, frá fyrirtækjum til starfsmanna eða einfaldlega fyrir alla sem vilja styrkja starf félagsins. Þeir sem hafa áhuga á að panta geta haft samband við Önnu Maríu og Óskar í gegnum skilaboð á Facebook, í síma 848 6726 eða með tölvupósti á siglotennis@gmail.com.
Myndir: Facebook / Tennis og Badmintonfélag Siglufjarðar










