Í desember 2019, janúar og febrúar 2020 var veðurfar óvenju slæmt á Íslandi. Samgöngur lágu niðri og mannvirki urðu fyrir tjóni. Jörðin Hrútatunga í Hrútafirði var þar engin undantekning og né heldur tengivirkið sem stendur á lóð nyrst á landi jarðarinnar.
Á þessum þremur mánuðum leysti tengivirkið nokkrum sinnum út með þeim afleiðingum að heimili á stóru svæði voru án rafmagns, fyrirtæki gátu ekki starfað og stofnanir ekki sinnt sínu hlutverki.
Í ljósi þessa atburða hefur verið ákveðið að endurnýja núverandi útivirki með nýju innivirki.
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 14. apríl s.l. að kynna skipulagslýsingu skv. 1. málsgrein, 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsingin sem unnin er hjá Stoð ehf verkfræðistofu, er sett fram í greinargerð útg. 1.1 dags. 27.03.2020, sem verður til sýnis í Ráðhúsi Húnaþings vestra og á heimasíðu sveitarfélagsins á þessari slóð: https://www.hunathing.is/is/thjonusta/skipulags-og-byggingarmal/skipulagsmal-i-auglysingu frá og með 25. apríl til og með 17. maí 2020.
Íbúum og hagsmunaaðilum er gefinn kostur á því að leggja fram sjónarmið og ábendingar við skipulagslýsinguna og skal þeim skilað skriflega á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is fyrir 17. maí n.k.