Frumkvæði 4. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar
Nýlega barst bæjarstjóra Fjallabyggðar erindi frá 4. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar. Nemendur höfðu unnið ítarlegt verkefni um sveitarfélagið sitt og tekið fjölmargar ljósmyndir af svæðum sem þeir telja að þurfi lagfæringar. Í erindinu er þess óskað að bæjarstjóri beini þeirri áskorun til samfélagsins að taka höndum saman og gera bæinn okkar enn betri.
Ánægja með ákveðna þætti en einnig ábendingar um úrbætur
Nemendur lýsa ánægju sinni með ýmsa þætti í bænum, svo sem hoppukastalann, nýjar ruslatunnur, skólalóðina, sundlaugina og grillkofann. Jafnframt benda þeir á að ýmislegt annað mætti bæta til að auka ánægju barna og unglinga í Fjallabyggð.
Meðal þeirra atriða sem nemendur nefna sérstaklega eru þörf á götuhreinsun, lagfæring á beygluðum ljósastaurum og nýrri málningu á gangbrautir. Þá benda þeir á umhverfi nýbyggingar við Vallarbraut, leggja til að sett verði upp fleiri blóm, lagfæra gangstéttir og götur, sérstaklega með eldri borgara í huga, og að hugað verði að opnum svæðum í sveitarfélaginu.
Hér að neðan má sjá bréf og myndir sem börnin afhentu bæjarstjóra Fjallabyggðar. Smella á myndir til að sjá þær stærri.






















Bæjarráð þakkar fyrir framtakið og hvetur til samvinnu
Bæjarráð þakkar 4. bekk kærlega fyrir þetta frumkvæði og fagnar ábendingum þeirra um það sem betur má fara í umhverfismálum og víðar í sveitarfélaginu. Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra að fylgja eftir þeim verkefnum sem mögulegt er að ráðast í, líkt og bent er á í erindinu. Jafnframt tekur bæjarráð eindregið undir ósk 4. bekkjar um að allir í samfélaginu taki þátt í að halda nærumhverfi okkar í Fjallabyggð í góðu lagi.