Föstudagsmorgunþátturinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir fellur niður aðra vikuna í röð vegna óviðráðanlegra orsaka. Oskar Brown, umsjónarmaður þáttarins, hefur unnið í því síðustu vikur að bæta tækjabúnaðinn í Studio 7. Oskar vonaðist til þess að geta verið með hlustendum FM Trölla í beinni útsendingu þessa vikuna en þar sem hluti af tækjabúnaðinum er ekki kominn í hús sér hann sig tilneyddan til þess að fresta þættinum.    

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Hægt er að hlusta á FM Trölla út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.