Árlega er haldin alþjóðleg tónlistarhátíð á Siglufirði sem hefur það að markmiði að kynna þjóðlagaarf ólíkra þjóða og þjóðarbrota.
Á hátíðinni hefur tónlist fjölmargra þjóða verið kynnt auk þess sem íslensk þjóðlög sitja ætíð í öndvegi.
Þjóðlagahátíðin stendur frá miðvikudegi til sunnudags fyrstu heilu vikuna í júlí ár hvert.
Auk tónleika er boðið upp á námskeið, bæði í tónlist og handverki, gömlu og nýju. Þá er börnum þátttakenda boðið upp á ókeypis námskeið í leiklist og tónlist.
Sjá dagskrá Þjóðlagahátíðar 5.- 9. júlí hér: https://siglofestival.wpcomstaging.com/